25 júní 2013
Fundur sjávarútvegsráðherra landa við Norður Atlantshaf
<p>Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson sat fund sjávarútvegsráðherra landa við Norður Atlantshaf (NAFMC-North Atlantic Fisheries Ministers Conference) dagana 23. - 25. júní í Brønnøysund í Noregi. Viðstaddir voru ráðherrar og embættismenn frá ESB, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Kanada, Noregi og Rússlandi.</p>