08 desember 2011
Ráðherrafundur ÖSE í Vilníus
<p>Utanríkisráðherrafundur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, var haldinn í Vilníus, Litháen 6. – 7. desember 2011. Ráðherrarnir samþykktu að styrkja samstarfið við Afganistan og samstarfsríki ÖSE, einkum við ríki í norðanverðri Afríku. Þá var einnig samþykkt ákvörðun um að styrkja getu ÖSE til að koma í veg fyrir átök og yfirlýsing um aðgerðir gegn mansali.</p>