18 desember 2014
„Ísland - allt árið“ heldur áfram næstu tvö ár. Ríkið leggur fram allt að 200 milljónir á næsta ári.
Í dag skrifuðu aðstandendur markaðsverkefnisins <strong>Ísland - allt árið</strong> undir nýjan samning sem gildir út árið 2016. Stjórnvöld munu leggja til allt að 200 milljónir á ári gegn jafn háu mótframlagi frá samstarfsaðilunum; Icelandair, Landsbankanum, Reykjavíkurborg og Samtökum ferðaþjónustunnar.