14 mars 2023
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra heimsóttu Úkraínu og funduðu með Volodomyr Zelensky
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, áttu fund með forseta Úkraínu, Volodomyr Zelensky, í Kænugarði í dag. Á fundinum ræddu þau stöðuna í Úkraínu, stuðning Íslands við Úkraínu og væntanlegan leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík í maí en þar verða málefni Úkraínu í brennidepli.