17 október 2023
Einföldun á eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum
Þörf er á gagngerum breytingum á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarháttum og matvælaeftirliti. Þetta er mat starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði í október 2022 í samráði við matvælaráðherra, til að leggja til nýtt fyrirkomulag að eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum.