20 febrúar 2007
Varðliðar umhverfisins
Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur boða til verkefnasamkeppni grunnskólabarna undir heitinu <em>Varðliðar umhverfisins</em>. Keppnin er ætluð ungu fólki í 5. til 10. bekk og hún á að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Skilafrestur verkefna er 20. mars.