26 apríl 2013
Krepputunga
friðlýst – Vatnajökulsþjóðgarður stækkar
<p>Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur staðfest friðlýsingu Krepputungu, 678 ferkílómetra svæðis sem liggur á milli Jökulsár á Fjöllum og Kreppu. Svæðið verður hluti Vatnajökulsþjóðgarðs en innan þess er m.a. Kverkfjallarani og Hvannalindir. Þegar í sumar verður aukið við landvörslu á hinu friðlýsta svæði.</p>