08 apríl 2003
Af fyrsta fundi Vísinda- og tækniráðs
Á fyrsta fundi Vísinda- og tækniráðs fjallaði forsætisráðherra m.a. um eflingu sjóða sem veita styrki til rannsókna- og þróunarstarfsemi, mikilvægi nýsköpunarfyrirtækja fyrir íslenskt samfélag, samstarf háskóla og fyrirtækja og nauðsyn þess að endurskoða skipulag opinberra rannsóknastofnana.