21 mars 2012
Kallað eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar
<p>Enn er hægt að skila inn verkefnum í samkeppnina Varðliða umhverfisins sem umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur standa fyrir meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd.</p>