20 september 2022
Forsætisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í dag viðstödd opnun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Á þinginu verður fjallað um stórar áskoranir sem heimurinn stendur frammi fyrir að loknum heimsfaraldri; stríðsátök, fæðuskort og vaxandi fátækt, og loftslagsvána.