05 apríl 2018
Skrifað undir rammasamning við Rauða krossinn á Íslandi
Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Sveinn Kristinsson, formaður Rauða krossins á Íslandi, skrifuðu í morgun undir rammasamning um stuðning ráðuneytisins við alþjóðlega mannúðaraðstoð Rauða krossins á Íslandi. Samningurinn gildir til loka árs 2020 og felur í sér fyrirsjáanleg framlög til mannúðarverkefna Rauða krossins yfir tímabilið.…