10 febrúar 2014
Leiðir til að fjölga körlum í
kennslu- og umönnunarstörfum
<p>Aðgerðahópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti kynja býður til opins umræðufundar fimmtudaginn 13. febrúar þar sem rætt verður um leiðir til að fjölga körlum í umönnunar- og kennslustörfum. Eitt af verkefnum hópsins er að stuðla að aðgerðum sem brjóta upp kynskiptan vinnumarkað og draga úr kynbundnum launamun.</p>