27 apríl 2006
Nýr formaður Innflytjendaráðs stýrir stefnumótun félagsmálaráðuneytisins í málefnum innflytjenda
Félagsmálaráðherra hefur skipað Sæunni Stefánsdóttur, aðstoðarmann ráðherra, nýjan formann Innflytjendaráðs en ráðið var sett á fót í nóvember sl. Innflytjendaráði er ætlað að fjalla um helstu atriði er varða aðlögun útlendinga að íslensku samfélagi og vera stjórnvöldum til ráðgjafar við stefnumótun í málaflokknum.