13 janúar 2017
Nordic Matters: Norræn menning í brennidepli í London árið 2017
Norræn menning og listir verða í brennidepli hjá Southbank Centre í London allt árið 2017 með menningarhátíðinni Nordic Matters, sem hófst formlega í dag. Southbank Centre er stærsta menningarmiðstöð Bretlands og stendur hún við hinn líflega suðurbakka Thames árinnar í miðborg London en hana sækja 5 milljónir gesta ár hvert.…