11 maí 2010Mál nr. 147/2009Með hliðsjón af skýringum kæranda og læknisvottorði sem hann lagði fram bar Vinnumálastofnun að beita undantekningarreglu 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og svipta kæranda ekki greiðslu atvinnuleysisbóta í 40 daga á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna. Ákvörðunin felld úr gildi.
11 maí 2010Mál nr. 138/2009
Sú starfsvenja Vinnumálastofnunar að krefja atvinnuleitendur um að skrá sig í virkri atvinnuleit 20.-25. hvers mánaðar styðst ekki við skráða réttarheimild. Þótt kærandi hafi ekki farið eftir starfsvenjum Vinnumálastofnunar að þessu leyti stóðst það ekki lög að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans væru stöðvaðar. Hin kærða ákvörðun var felld úr gildi.

11 maí 2010Mál 139/2009Kærandi var boðuð til fundar með erindi er sent var á það heimilisfang er hún hafði tilkynnt Vinnumálastofnun. Skýringar kæranda ekki taldar réttlæta fjarveru hennar á fundi stofnunarinnar þann 28. ágúst 2009 og að með fjarveru sinni var talið að hún hefði brugðist skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
11 maí 2010Dagur upplýsingatækninnar 2010
Dagur upplýsingatækninnar 2010 verður haldinn 20. maí nk. Að þessu sinni verða 2 ráðstefnur haldnar á UT-deginum og er hægt að taka þátt í þeim báðum eða velja aðra þeirra.  Báðar ráðstefnurnar verða í Salnum í Kópavogi.  Í lok dagsins verða Upplýsingatækniverðlaun Ský veitt og boðið verður uppá léttar veitingar.

11 maí 2010Rýmka á heimild til notkunar þjóðfánans við markaðssetninguSamkvæmt frumvarpi sem forsætisráðherra hefur mælt fyrir verða heimildir til að nota þjóðfánann við markaðssetningu á íslenskri framleiðslu rýmkaðar frá því sem nú er.
11 maí 2010Mælt fyrir frumvarpi um fjármál stjórnmálasamtaka, frambjóðenda og upplýsingaskyldu þeirraForsætisráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.
11 maí 2010Mennta- og menningarmálaráðherra og starfsfólk ráðuneytisins heimsóttu Jarðvísindastofnun Háskóla ÍslandsMennta-og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir og starfsfólk ráðuneytisins heimsóttu Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands mánudaginn 10. maí.
11 maí 2010Skrifað var undir samning mennta- og menningarmálaráðuneytis og ÞórbergssetursSkrifað var undir samning mennta- og menningarmálaráðuneytis og Þórbergsseturs þann 5. maí síðastliðinn. Þórbergssetur er fræðasetur á fæðingarstað Þórbergs Þórðarsonar að Hala í Suðursveit.
10 maí 2010Fundur á Patreksfirði um samgöngumál á Vestfjörðum
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og vegamálastjóri verða meðal ræðumanna á almennum íbúafundi um samgöngumál á Vestfjörðum sem haldinn verður í Félagsheimilinu á Patreksfirði annað kvöld, þriðjudag 11. maí klukkan 20.

10 maí 2010Mál nr. 35/2009. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru, dags. 14. desember 2009, kærði Logaland ehf. ákvörðun Ríkiskaupa um val á tilboðum í útboðinu 14651: Plástrar, bindi, grisjur og fleira.