19 september 2013
Utanríkisráðherra við útskrift Landgræðsluskóla Sameinuðu þjóðanna
<p>Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra ávarpaði í dag nemendur Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna við útskrift þeirra frá skólanum.  Tíu nemar frá sjö löndum voru í útskriftarhópnum, fimm konur og fimm karlar, en alls hefur 51 nemandi lokið námi við skólann.</p>