17 janúar 2023
Fléttan: Dicino Medical Technologies innleiðir fjöltyngt forskráningarkerfi sjúklinga
Dicino Medical Technologies, í samstarfi við Heilsugæsluna Höfða, hlýtur styrk úr Fléttunni til verkefnis sem snýr að innleiðingu nýs forskráningarkerfis sjúklinga. Að baki fyrirtækinu stendur teymi sem hefur fjölþættan bakgrunn og reynslu af læknavísindum og viðskiptum auk vöruþróunar fyrir bæði innlendan og erlendan markað.