13 nóvember 2014
Norræna ráðherranefndin vill efla nýsköpun og bæta starfsumhverfi sprotafyrirtækja
<p>Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, stýrði fundi Norrænu ráðherranefndarinnar um atvinnumál í gær. Á fundinum voru ræddar sameiginlegar áherslur Norðurlandanna og má þar nefna frumkvöðlastarf og nýsköpun, einföldun regluverks, ferðaþjónustu og hvernig Norðurlöndin geti aukið útflutning sinn.<br>
</p>