02 nóvember 2010
Össur fundar með utanríkisráðherra Rússlands
<p>Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra átti í dag fund með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands í Osló. Á fundinum lýstu báðir ráðherrarnir eindregnum vilja til að efla samstarf Rússlands og Íslands á ýmsum sviðum, og lögðu sérstaka áherslu á orkumál og samvinnu um málefni Norðurslóða.</p>