24 október 2016
Alls 246.515 kjósendur á kjörskrárstofni
<p>Á kjörskrárstofnum þeim, sem Þjóðskrá Íslands hefur unnið vegna alþingiskosninganna 29. október næstkomandi, eru kjósendur 246.515 sem er fjölgun um 3,7% frá alþingiskosningunum 27. apríl 2013. Þá voru 237.807 kjósendur á kjörskrá og hefur þeim því fjölgað um 8.708. Fjöldi karla og kvenna er svo til jafn. Konur á kjörskrá eru 123.627 en karlar 122.888.</p>