06 mars 2006
Samningar um sjúkraflutninga undirritaðir
Síðasta embættisverk Jóns Kristjánssonar, sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, var að undirrita tvo samninga tengdum sjúkraflutningum. Annars vegar samning við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um sjúkraflutninga á svæðinu og hins vegar samning við Rauða kross Íslands um útvegun og rekstur bifreiða og tækjabúnaðar til sjúkraflutninga.