03 mars 2010
Ráðherra á fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York
<p>„Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að vinna ötullega að jafnrétti karla og kvenna. Jafnrétti kynja er grundvöllur þess að efla lýðræði og skapa sjálfbæran heim, líkt og okkur ber skylda til gagnvart börnunum okkar og komandi kynslóðum.“ Þetta sagði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, á fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú fer fram í New York.</p>