07 júní 2019
Ilmbanki og Íslenskt tweed á meðal verkefna sem fá styrk úr Hönnunarsjóði
Úthlutun úr Hönnunarsjóði fór fram á ársfundi Hönnunarmiðstöðvar Íslands í gær og hlutu alls 33 verkefni styrki, samtals að upphæð 23,7 milljónir.
Nordic Angan hlaut hæsta einstaka styrkinn 2 m.kr. fyrir verkefnið Ilmbanki íslenskra jurta – lifandi ilmsýning í Álafosskvos. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra veitti styrkþegum viðurkenningarskjöl.