29 janúar 2014
Mál nr. 29/2013. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
<p align="justify">Með kæru 20. nóvember 2013 sem barst kærunefnd útboðsmála sama dag, kærði Túlkaþjónustan slf. útboð Reykjavíkurborgar nr. 13086 ,,Rammasamningur um túlka- og þýðingarþjónustu“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit á skaðabótaskyldu varnaraðila og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað vegna kærumeðferðarinnar.</p>