23 desember 2010
Árangursstjórnunarsamningar undirritaðir
<p>Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og forstöðumenn átta stofnana ráðuneytisins undirrituðu nýverið árangursstjórnunarsamninga milli ráðuneytisins og stofnananna. Samningarnir festa í sessi samskiptaferli milli ráðuneytisins og stofnananna og eru grundvöllur áætlanagerðar, stefnumótunar og árangursmats. Þá er lögð sérstök áhersla á að jafna stöðu kynjanna í allri starfsemi stofnananna.</p>