22 september 2016
Listabókstafir og heiti stjórnmálasamtaka
<p>Innanríkisráðuneytið heldur skrá um listabókstafi stjórnmálasamtaka sem buðu fram lista við síðustu alþingiskosningar. Hyggist stjórnmálasamtök, sem hafa ekki skráðan listabókstaf, bjóða fram lista við alþingiskosningar skal það tilkynnt innanríkisráðuneytinu eigi síðar en þremur sólarhringum áður en framboðsfrestur rennur út, þ.e. eigi síðar en á hádegi þriðjudaginn 11. október 2016.</p>