08 desember 2012
Samkomulag í Doha: Nýtt
skuldbindingartímabil Kýótó samþykkt 2013-2020
<p>Skuldbindingar Kýótó-bókunarinnar um losun gróðurhúsalofttegunda verða framlengdar til ársins 2020, samkvæmt ákvörðun 18. aðildarríkjaþings Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, sem lauk í dag í Doha í Katar. Fyrsta skuldbindingartímabilinu, 2008-2012, lýkur nú í árslok, en með ákvörðuninni í Doha er tryggt að takmarkanir á losun verða framlengdar á nýju tímabili, 2013-2020.</p>