04 október 2016
Reglugerð um upprunamerkingar á kjöti væntanleg - til hagsbóta fyrir neytendur
<p>Í því augnamiði að tryggja rétt neytenda til að vita frá hvaða landi þær kjötvörur eru sem þeir kaupa hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sett fram drög að reglugerð þar sem að framleiðendum og innflytjendum er skylt að upprunamerkja kjötafurðir af svínum, sauðfé, geitum og alifuglum. Sambærilegar reglur eru nú þegar í gildi um upprunamerkingar á nautakjöti.</p>