22 október 2007
Óskað eftir athugasemdum við drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni
Almenningi, félagasamtökum og stofnunum gefst tækifæri til að senda inn athugasemdir við drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni, sem kynnt voru á Umhverfisþingi 12.-13. október. Athugasemdir þurfa að berast fyrir 15. desember.