14 júní 2006
Samgönguráðherra reynir ökuhermi
<p align=justify>Sturla Böðvarsson samgönguráðherra tók í dag formlega í notkun fyrsta ökuhermi í landinu en það eru Sjóvá, Brautin - bindindisfélag ökumanna, og samgönguráðuneytið sem sameinuðust um fjármögnun hans. Ökuhermirinn verður í nýju Forvarnahúsi Sjóvár í Kringlunni í Reykjavík en hægt er einnig að fara með hann um landið.</p>