25 október 2005
Tillögur framkvæmdanefndar um nýskipan lögreglumála
Framkvæmdanefnd um nýskipan lögreglumála, sem skipuð var af Birni Bjarnasyni dóms- og kirkjumálaráðherra fyrr á þessu ári, hefur skilað ráðherra tillögum sínum um nýskipan lögreglumála. Í stuttu máli gerir nefndin þá tillögu að lögregluumdæmi í landinu verði fimmtán talsins, og þar af verði sjö skilgreind sem lykilembætti.…