29 apríl 2011
Kraftur í nýsköpun kvenna
<p>Markaðssetning á hlývatnsfiski, vöruþróun á brúðunni RóRó fyrir börn með svefnvandamál, fræðandi púsluspil um íslenska náttúru og dýralíf og fréttagátt á pólsku. Þetta eru dæmi um þau fjölbreyttu verkefni sem hlutu styrki til atvinnumála kvenna sem velferðarráðherra úthlutaði í dag.</p>