31 október 2007
Hröð bráðnun hafíss veldur áhyggjum
Umhverfisráðherrar Norðurlanda samþykktu á fundi sínum í Ósló í dag yfirlýsingu, þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna hraðrar bráðnunar hafíss á Norðurslóðum. Útbreiðsla hafíss á norðurheimskautssvæðinu hefur aldrei mælst minni en í september sl., en þá var hún 23% minni en árið 2005, þegar fyrra met var sett.