14 desember 2016
Sagan á bak við capulana
<p>Eitt af því sem einkennir Mósambík er litríkur fatnaður heimamanna sem fer varla fram hjá neinum sem sækir landið heim. Hvert sem litið er sér maður konur sveipaðar í litrík og mynstruð efni, svokölluð capulana, sem þær binda um sig miðja og nota sem einskonar pils, eða sem burðarpoka fyrir börnin sín, höfuðklúta og fleira. </p>