10 mars 2017
Bættur undirbúningur lagasetningar
Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýjar reglur um undirbúning stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna. Markmiðið er einkum að auka gagnsæi í vinnsluferli frumvarpa, efla samráð milli ráðuneyta og stuðla almennt að vandaðri undirbúningi, sbr. stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.