08 júní 2016
Ný könnun á félagslegum leiguíbúðum sveitarfélaganna
<p>Leiguíbúðir í eigu sveitarfélaganna voru tæplega 5.000 við lok síðasta árs. Skortur er á leiguíbúðum í fjórum fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Meðalbið fólks eftir félagslegum leiguíbúðum á landsvísu er 14,6 mánuðir en 42 mánuðir þar sem biðin er lengst. Þetta o.fl. kemur fram í nýrri könnun Varasjóðs húsnæðismála.</p>