26 júní 2014
OECD opnar nýsköpunarvef fyrir opinberan rekstur
<p>Fjallað er um yfir 110 nýsköpunarverkefni í opinberum rekstri á nýrri vefsíðu, sem Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hefur hleypt af stokkunum. Þar á meðal eru fjögur íslensk verkefni, sem öll hafa hlotið verðlaun eða viðurkenningu fyrir nýsköpun hér á landi og sum þeirra einnig erlendis.</p>