04 október 2017
Ísland leiðir hóp 39 ríkja í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna
<p>Ísland hefur tekið virkan þátt í umræðu á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf um þróun mála á Filippseyjum. Í febrúar síðastliðnum flutti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræðu í mannréttindaráðinu, fyrstur íslenskra utanríkisráðherra og vakti máls á stöðu mála í Filippseyjum.</p>