13 ágúst 2012
Nýr vígslubiskup fær skipunarbréf
<p>Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra afhenti í morgun sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur, nývígðum vígslubiskupi á Hólum, skipunarbréf í embættið á skrifstofu vígslubiskups í Auðunarstofu. Viðstaddur var sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, fráfarandi vígslubiskup, en sr. Solveig Lára tekur formlega við embættinu um næstu mánaðamót.</p>