09 nóvember 2006
Átján erindi á tveggja daga umferðarþingi
<p align=justify>Boðað hefur verið til umferðarþings dagana 23. og 24. nóvember næstkomandi og fer það fram á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, setur þingið og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra flytur ávarp við setninguna og afhendir Umferðarljósið, verðlaun Umferðarráðs, sem veitt eru fyrir eftirtektarvert og/eða árangursríkt starf á sviði umferðarmála.</p>