08 desember 2023
Leigutorg fyrir íbúa Grindavíkur opnað
Klukkan 14 í dag verður opnað leigutorg á Ísland.is fyrir íbúa Grindavíkur. Þar verður hægt að skoða leiguíbúðir sem skráðar hafa verið í kjölfar auglýsingar þar sem óskað var eftir húsnæði til að leysa tímabundið úr húsnæðisþörf Grindvíkinga. Margir hafa brugðist við, en á torginu eru um 150 eignir auglýstar til leigu á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og víðar.…