06 september 2004
Samúðarkveðjur utanríkisráðherra vegna hryðjuverkanna í Rússlandi
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, hefur ritað bréf til Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, þar sem rússnesku þjóðinni er vottuð samúð vegna mannskæðrar árásar hryðjuverkamanna á skóla í bænum Beslan í Norður-Ossetíuhéraði.