08 október 2010
Áhersla á Evrópu
<p>Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með eistneskum starfsbróður sínum, Urmas Paet, í Tallinn í Eistlandi. Ráðherrarnir ræddu Evrópumál, samskipti ríkjanna og öryggis- og varnarmál. Utanríkisráðherra ræddi stöðuna í formlegum samningaviðræðum Íslands við Evrópusambandið og fór yfir helstu hagsmunamál Íslands.</p>