28 nóvember 2006
Ráðherrafundur gegn fíkniefnum
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti í dag, ræðu á ráðherrafundi Pompidou hópsins í Strasborg. Ráðherra ræddi um nýskipan lögreglumála á Íslandi og hertar aðgerðir lögreglu gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi og fíkniefnum, sem enn myndu eflast með nýskipan lögreglumála 1. janúar 2007 og stofnun greiningardeildar hjá ríkislögreglustjóra.