23 febrúar 2012
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar endurnýjaður með breyttum formerkjum til næstu tveggja ára
<p>Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og iðnaðarráðuneytið undirrituðu í dag samning um Vaxtarsamning Eyjafjarðar sem gildir fyrir árin 2012 og 2013. Markmið samningsins er að efla nýsköpun á starfssvæði AFE, þétta innviði atvinnulífsins á svæðinu og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja svæðisins, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins.</p>