17 febrúar 2014
Ráðherrar ræddu um loftslagsmál og endurnýjanlega orku í Japan
<p>Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, átti í dag fund með Nobuteru Ishihara, umhverfisráðherra Japans, í Tókýó. Ráðherrarnir ræddu um ýmis umhverfismál, þar á meðal um loftslagsmál og hlutverk endurnýjanlegrar orku til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. </p>