28 september 2023
Jafnlaunavottun 2023 – hverfandi launamunur í utanríkisráðuneytinu mælist nú konum í vil
Leiðréttur launamunur kynjanna í utanríkisráðuneytinu nemur nú 0,3 prósentum og mælist konum í vil í fyrsta skipti. Ráðuneytið hlaut í gær vottun frá Vottun hf., sem er staðfesting þess að jafnlaunakerfi ráðuneytisins samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins.