21 janúar 2003
V-dagurinn styrktur
Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í dag að tillögu Sólveigar Pétursdóttur, dóms- og kirkjumálaráðherra að styrkja verkefni í tilefni V-dagsins um eina milljón króna. V-dags verkefnið hefur það að markmiði að breyta hugarfari fólks varðandi nauðganir og að binda enda á ofbeldi gegn konum.