24 júlí 2019
Stuðningur við regnhlífarsamtök stúdenta
Landssamtök íslenskra stúdenta eru samtök háskólanema á Íslandi og íslenskra háskólanema á erlendri grundu. Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkir starfsemi félagsins og á dögunum undirrituðu Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Sonja Björg Jóhannsdóttir, forseti framkvæmdastjórnar LÍS, samning þess efnis.