14 september 2006
Verndum þau - gegn ofbeldi og vanrækslu á börnum og unglingum
<p align=justify>Menntamálaráðuneyti og Félag fagfólks í frítímaþjónustu standa fyrir námskeiðum næstu mánuði um það hvernig bregðast á við vanrækslu eða ofbeldi gegn börnum og unglingum. Námskeiðin eru byggð á efni bókarinnar, <i>Verndum þau</i>. Námskeiðin eru ætluð öllum þeim sem starfa með börnum og unglingum hjá sveitarfélögum, íþróttafélögum, æskulýðsfélögum og öðrum þeim sem áhuga hafa.…